Félagsráðgjafi

Athugið að vegna COVID-19 er tímabundið einungis boðið upp á símatíma hjá félagsráðgjafa.
Félagsráðgjafi MS-félagsins býður upp á margþætta þjónustu:
  • Einstaklings-, hjóna/para- og fjölskylduviðtöl.
  • Stýrir og skipuleggur námskeið fyrir MS-greinda og fjölskyldur þeirra.
  • Veitir upplýsingar um rétt í veikindum hjá Sjúkratryggingum, Tryggingastofnun, lífeyrissjóðum, stéttarfélögum o.fl. og aðstoðar einstaklinga við að sækja rétt sinn.
  • Veitir upplýsingar um réttindamál og félagsleg úrræði.
  • Er talsmaður og tengiliður fólks við stofnanir.
  • Annast bréfaskriftir vegna skjólstæðinga.
  • Greinir og metur félagslegar aðstæður og tengslanet.
  • Veitir ráðgjöf og stuðning vegna félagslegra aðstæðna.
  • Skipuleggur félagsleg úrræði, t.d. liðveislu, heimaþjónustu, stuðningsteymi eða starfsendurhæfingu.
  • Tekur þátt í að samræma þjónustu fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra.

Þjónusta félagsráðgjafans er kostuð af Reykjavíkurborg og er félagsmönnum því að kostnaðarlausu.

María Rúnarsdóttir er félagsráðgjafi MS-félagsins.​ Mynd af Maríu Rúnarsdóttur félagsráðgjafa

María útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands árið 1998. María er með víðtæka starfsreynslu. Hún var formaður Félagsráðgjafafélags Íslands á árunum 2012 til 2019 og sat í Evrópustjórn félagsráðgjafa 2015-2019. Áður starfaði María hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur og Miðgarði fjölskylduþjónustu í Grafarvogi. María hefur víðtæka þekkingu á félagsþjónustu og opinberri stjórnsýslu auk mikillar þekkingar á þjónustu við fatlað fólk. Hún hefur haldið haldið fyrirlestra innanlands og utan og skipulagt innlendar og  alþjóðlegar ráðstefnur og fundi. María er sjálfstætt starfandi félagsráðgjafi hjá Domus Mentis – Geðheilsustöð þar sem hún veitir m.a. ráðgjöf og stuðning vegna félagslegra aðstæðna og handleiðslu til fagfólks og stjórnenda.

Tölvupóstfang Maríu er maria@msfelag.is

Tímapantanir

Viðtölin fara fram í nýuppgerðu og notalegu viðtalsherbergi í MS-húsinu að Sléttuvegi 5.

Viðtölin verða í boði á miðvikudögum. Hægt er að panta tíma:

Tilkynna þarf um forföll eigi síðar en kl. 15 daginn fyrir viðtal með því að: