Skráning í félagið
Hefur þú áhuga á gerast félagi?
Markmið félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MS-sjúkdómnum með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarsemi. Félagið er málsvari félagsmanna gagnvart hinu opinbera og öðrum aðilum.
Félagsgjaldið fyrir árið 2018 er 2.500 kr.
Með félagsaðild færð þú:
- MS-blaðið (áður MeginStoð), tímarit MS-félagsins, tvisvar á ári
- Ókeypis aðgang að jólaballi og páskabingói
- Ókeypis ráðgjöf félagsráðgjafa
- Aðgang að öllum uppákomum og fræðslufundum félagsins
- Niðurgreidd námskeið á vegum félagsins
- Og margt fleira