Ykkar styrkur er okkar stoð
Viltu hjálpa til við að renna styrkari stoðum undir rekstur MS-félagsins og gerast Stoðvinur?
Stuðningur Stoðvina er ómetanlegur!
MS-félagið nýtur mjög lítilla opinberra styrkja og innheimtir mjög lágt félagsgjald svo velvild einstaklinga, félaga og fyrirtækja stendur undir starfsemi félagsins.
Sem Stoðvinur styður þú félagið með mánaðarlegum framlögum (1.500 kr. eða hærra) og hjálpar þannig til við að renna styrkari stoðum undir rekstur félagsins.
Hægt er að segja sig frá mánaðarlegum framlögum hvenær sem er. Fullum trúnaði er heitið hvað varðar allar greiðsluupplýsingar.
Sem þakklæti fyrir stuðninginn fá allir Stoðvinir árlega jólaglaðning frá MS-félaginu.
Hægt er að skrá sig hér. Í kjölfarið mun starfsmaður félagsins, hafa samband varðandi greiðsluupplýsingar.
Einnig er hægt að hafa samband í síma 568 8620 eða senda tölvupóst á netfangið msfelag@msfelag.is til að fá nánari upplýsingar.