Atvinna með stuðningi á vegum Vinnumálastofnunar er árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá er þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Verkefnið felur í sér víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og/eða líkamlegrar fötlunar, aðstoð við að finna rétta starfið og veita stuðning á nýjum vinnustað.
Markhópur
Einstaklingar með skerta starfsgetu sem þurfa aðstoð við atvinnuleit, þjálfun í starf og stuðning við að halda vinnu á almennum vinnumarkaði.
Þjónustan
- Þátttaka og þjálfun á almennum vinnumarkaði.
- Aðstoð við öflun starfa með sömu réttindum og skyldum og almennt gerist.
- Færni umsækjanda er höfð að leiðarljósi en ekki fötlunin.
- Úrræði miða að þörfum einstaklings.
- Áhersla á góða samvinnu við atvinnurekendur.
- Aðstoð við að mynda tengsl á vinnustað.
- Stuðningur svo lengi sem þörf er á.
- Byggt upp stuðningsnet á vinnustað.
- Markvisst er dregið úr stuðningi, en vinnuveitandi og starfsmaður hafa þó áfram aðgang að ráðgjafa eftir þörfum.
- AMS er umsjónaraðili vinnusamnings öryrkja.
Frétt af http://www.vinnumalastofnun.is/atvinnuleitandi/atvinna-med-studningi/
BB