Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.
Hér getur þú nálgast æfingaplanið fyrir apríl-mánuð.
Nú eru blöðin tvö – annað er með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á hitt getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.
Ert þú til í áskorunina?
Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.
Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið.
Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni.
Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.
Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi