Námskeið fyrir einstaklinga, nýgreinda með MS, hefst 8. janúar, ef næg þátttaka næst.
TÍMI (með fyrirvara um breytingar):
- 8. jan. (þriðjud.) kl. 14:00 – 18:00
- 12. jan. (laugard.) kl. 10:00 – 14:00
- 17. jan. (fimmtud.) kl. 17:30 – 19:30
- 24. jan. (fimmtud.) kl. 17:30 – 19:30
STAÐUR: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.
VERÐ: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.
LÝSING: Námskeiðið er fyrir fólk með tiltölulega nýja MS-greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda. Þátttakendur eru 6-8. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiða.
UMSJÓN: Sigríður Anna Einarsdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafi, sér um námskeiðið. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.
UPPLÝSINGAR: Á skrifstofu í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.
SKRÁNING: hér
Ítarlegar lýsingar á námskeiðum félagsins má finna hér.
Upplýsingasíða fyrir nýgreinda hér.
BB