Til hlaupara og stuðningsmanna
Hlaupurum MS-félagsins er boðið að koma á skrifstofu MS-félagsins að Sléttuvegi 5 á milli kl. 8 og 16 á morgun, fimmtudag og á föstudaginn til að fá frá félaginu, sem takk fyrir þátttökuna, merki félagsins, sem hægt er að næla í hlaupafötin, buff og armband.
Á skrifstofunni er einnig hægt að kaupa boli merkta félaginu, skyggni og derhúfur á 2.500 kr. stykkið.
Við hlökkum til að sjá ykkur 🙂
Áheitasöfnunin
Áheitasöfnunin hefur gengið ágætlega og stendur nú í rúmlega 643 þúsundum.
Hægt er að fylgjast með áheitasöfnuninni hér.
Sjá myndir frá maraþoninu 2017 hér.
Rafskutluleiga Sjálfsbjargar: Nýtt á Menningarnótt
Þeir sem eiga erfitt með gang en eiga ekki hjólastól eða rafskutlu, geta leigt sér rafskutlu eða hjólastól á bílastæðinu við Tækniskólann á vegum Hjálpartækjaleigu Sjálfbjargar. Panta verður tæki fyrir kl. 15 föstudaginn 17. ágúst.
Sendið tölvupóst á Davíð Þ. Olgeirsson, í netfangið david@thekkingarmidstod.is fyrir frekari upplýsingar.
Frábært framtak hjá Hjálpartækjaleigunni 🙂
Munið hvatningarstöðina við Olís á Granda
Við – og vonandi margir aðrir – verðum á staðnum á milli kl. 9 og 12. Sjá viðburðinn hér.
Hvar er hvað?
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða
- Rafskutluleigu (NÝTT)
- Aðgengi inn á hátíðarsvæði
- Ferðaþjónustu fatlaðra
- Salernisaðstöðu fyrir hreyfihamlaða
- Dagskrá
- Kort yfir hátíðarsvæðið þar sem búið er að merkja helstu staði inn. Sjá einnig hér.
Um almenna þjónustu Strætó á Menningarnótt má lesa hér.
BB