Kallað er eftir áhugasömum einstaklingum frá aðildarfélögunum Öryrkjabandalagsins til þátttöku í starfi málefnahópa ÖBÍ. Hóparnir samanstanda af formanni sem kosinn er á aðalfundi og 6 fulltrúum sem tilnefndir eru af aðildarfélögum ÖBÍ auk tveggja varamanna.
Fulltrúa vantar í eftirfarandi málefnahópa til eins árs, fram að aðalfundi ÖBÍ 2019:
- Aðgengi 1 varamann
- Atvinnu- og menntamál 1 varamann
- Kjaramál 2 varamenn
- Sjálfstætt líf 1 varamann
- Málefni barna 1 aðalmann og 1 varamann
Aðildarfélögin geta tilnefnt í þessa hópa að vild, þ.e. að tilnefna má einn eða fleiri fulltrúa. Mikilvægt er að þeir fulltrúar sem tilnefndir eru hafi brennandi áhuga og svigrúm til þátttöku í málefnastarfinu.
Sjá nánar um málefni og fulltrúa málefnahópanna.
Viljir þú hafa áhrif á þessu mikilvægu réttindamál öryrkja, þér og öðrum til hagsbóta, endilega skráðu þig hér í síðasta lagi mánudaginn 19. nóvember (eftir helgi).
BB