Af stað! Þú getur þetta!
Höfundur: Belinda Chenery, sjúkraþjálfari. MeginStoð 2. tbl. 2016
Inngangur: Skynsamleg þjálfun er öllum nauðsynleg. Áhrif hennar á líkama og sál eru óumdeild. Fjöldi rannsókna hefur meðal annars sýnt fram á jákvæð áhrif þjálfunar á stoðkerfið, meltingarkerfið, æðakerfið, blóðsykur og líkamsþyngd. Góð hreyfing dregur úr streitu, þreytu, kvíða, þunglyndi og almennri vanlíðan auk þess sem hún skerpir hugsun. Þjálfun hefur meira að segja áhrif á einkenni taugasjúkdóma, bætir tengingar í heilanum, dregur úr stífleika í vöðvum, eykur liðleika í liðum, bætir vöðvakraft, viðheldur færni og skerpir jafnvægið.
Með jafnvægi að Styrk
Höfundur: Svavar Sigurður Guðfinnsson. MeginStoð 2. tbl. 2016
Inngangur: Jafnvægisæfingar hófust fyrir tilstilli MS-félags Íslands og tauga- og endurhæfingarsviðs Reykjalundar í janúar 2009 í MS-Setrinu. Til að byrja með voru æfingarnar einu sinni í viku og hugsaðar fyrir einstaklinga sem sóttu ekki dagvist MS, voru með MS-greiningu og gátu gengið með eða án gönguhjálpartækja.
Jafnvægisþjálfun skilar árangri
Höfundur: Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari. MeginStoð 2. tbl. 2016
Inngangur: Fólk með MS-sjúkdóm upplifir jafnvægisvanda snemma í sjúkdómsferlinu. Hræðsla við að detta og minni þátttaka, bæði heima fyrir og í samfélagi, getur fylgt í kjölfarið sem um leið getur haft enn frekari áhrif á heilsu og færni. Ástæður og afleiðingar skerts jafnvægis eru margvíslegar og verða þeim gerð skil hér sem og mögulegum leiðum til úrbóta….
Virkni í daglega lífinu
Höfundur: Kristbjörg Rán Valgarðsdóttir, iðjuþjálfi. MeginStoð 2. tbl. 2015
Inngangur: Það er mikilvægt fyrir alla að vera virkir þátttakendur í lífshlaupinu. Þegar veikindi ber að garði verða gjarnan miklar breytingar á daglegu lífi. Hlutverk og jafnvægi daglegrar iðju raskast og það þarf að aðlagast breyttum aðstæðum.
Sértæk þjálfun fólks með MS-sjúkdóm; fræðin, reynslan og framtíðin
Höfundur: Sif Gylfadóttir, sjúkraþjálfari MSc, Reykjalundi. MeginStoð 1. tbl. 2013
Inngangur: Góð líkamleg heilsa er gjöf. Það að finna góða líðan í líkamanum og finna mátt sinn og megin í „að geta“, og að hafa tækifæri til að nýta getuna til „að gera“, og að taka þátt, eru lífsins gæði.
Endurhæfing og MS
Höfundur: Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari. Ódagsett.
Endurhæfing einstaklinga með MS byggist á samstarfi margra aðila, því sem á fræðimáli er nefnt teymisvinna. Í teymisvinnu sameina krafta sína sérhæfðir starfsmenn úr ólíkum greinum með það að markmiði að endurhæfing hvers og eins verði sem markvissust.