Höfuðborgarsvæðið
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa gert samning við sex fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu um viðgerðarþjónustu vegna hjálpartækja.
Fyrirtækin eru:
- Fastus ehf.
- Icepharma hf.
- Stoð ehf. stoðtækjasmíði
- Títus ehf.
- Öryggismiðstöð Íslands ehf.
- Eirberg ehf. frá 1. september 2017
Verkstæðin hafa fengið aðgang að Gagnagátt SÍ til að sjá réttindi hjálpartækjanotenda tengt tæki að viðgerðarþjónustu.
Sjá upplýsingar um verkstæði á landsbyggðinni hér neðar.
Kostir nýja samningsins
- Fleiri þjónustuaðilar munu sinna viðgerðarþjónustu heldur en verið hefur.
- Í stað opnunartíma Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ, sem aðeins var opin 5 tíma á dag, hafa notendur hjálpartækja nú aðgengi að verkstæðisþjónustu í 8 – 9 tíma á dag.
- Boðið er upp á neyðarþjónustu með öryggisbakvakt til miðnættis við ákveðnar alvarlegar aðstæður.
- Heimakstur hjálpartækja.
- Vaxandi hluti hjálpartækja kemur til afgreiðslu hjá heilbrigðisstarfsmönnum í umboði SÍ í stað Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ.
Þjónusta fyrirtækjanna
- Ákveðnar viðgerðir, s.s. smærri viðgerðir eins og sprungið dekk á hjólastól, framkvæmdar á meðan beðið er.
- Viðgerð gerð svo fljótt sem auðið er hverju sinni.
- Almennar viðgerðir unnar innan tveggja vinnudaga ef varahlutir eru fyrirliggjandi hér á landi.
- Varahlutir afgreiddir til þeirra notenda hjálpartækja sem það vilja og geta skipt um sjálfir.
- Hægt að fá lánstæki (göngugrindur eða handknúna staðlaða hjólastóla) hjá verkstæði þjónustufyrirtækis á meðan viðgerð stendur ef notandi á ekki annan hjólastól/aðra göngugrind.
- Ef um stærri tæki er að ræða sem notandi getur ekki komið sjálfur með í hefðbundnum fólksbíl er hægt að óska eftir að verkstæði sæki og sendi tæki í og úr viðgerð.
- Ef um er að ræða veggföst hjálpartæki eða hjálpartæki sem ekki er hentugt að flytja af heimili notenda s.s. sjúkrarúm, kemur viðgerðamaður heim til viðkomandi.
Mat á hjálpartæki og ákvörðun um nýtt hjálpartæki
Þegar til álita kemur að gera ekki við tæki, það sé of gamalt og þörf sé á endurnýjun eða breyta þurfi tæki, þá skal verkstæði hafa samband við Hjálpartækjamiðstöð SÍ sem ákveður hvort endurnýja megi hjálpartæki eða gera breytingar á því.
Kynning SÍ á samningunum og verkefninu, sjá hér.
Nánari upplýsingar á vef SÍ, sjá hér.
Landsbyggðin
SÍ er einnig með samninga við verkstæði á landsbyggðinni um viðgerðarþjónustu hjálpartækja. Þau eru:
Ísafjörður
Rafskaut ehf, Suðurtangi 7
opið kl. 8:30 – 17:00 alla virka daga
Sími: 456 4742
Netfang: rafskaut@rafskaut.is
Sjá á korti
Akureyri, Húsavík og Þórshöfn
Rafeyri ehf, Norðurtanga 5, Akureyri
opið kl. 8:30 – 17:00 alla virka daga
Sími 461 1221 / 898 9869 á Akureyri
Sími 869 2492 á Húsavík
Sími 869 0993 á Þórshöfn
Netfang: rafeyri@rafeyri.is
Sjá á korti
Egilsstaðir:
Rafey ehf, Miðási 11
opið kl. 8:30 – 16:00 alla virka daga
Sími 471 2013
Netfang: rafey@rafey.is
Sjá á korti
Vestmannaeyjar
Geisli ehf, Hilmisgötu 4
opið kl. 8:30 – 17:00 alla virka daga
Sími 481 3333
Netfang: geisli@geisli.is
Sjá á korti