Þjónusta í boði hjá MS-félaginu
Skrifstofa félagsins að Sléttuvegi 5 í Reykjavík er opin milli kl. 10 og 15 alla virka daga.
Hægt er að nálgast ýmis konar upplýsingar og aðstoð, panta tíma hjá félagsráðgjafa, sálfræðingi og hjá fulltrúa úr viðtalshópi fræðsluteymis, skrá sig á námskeið og kaupa minningakort, gjafakort og annan varning til styrktar starfseminni. Sjá nánar hér til hliðar.
Sími skrifstofu er 568 8620 og tölvupóstfang msfelag@msfelag.is.
Nánar um þjónustuna
- Ýmis námskeið eru í boði, svo sem fyrir nýgreinda, börn, maka og foreldra MS-fólks. Sjá öll námskeið hér.
- Styktarþjálfun er hjá Styrk, sjúkraþjálfun, Höfðabakka 9; hópatímar með sjúkraþjálfara eða einstaklingstímar. Nánari upplýsingar hér og í síma 587 7750.
- Félagsráðgjafi – viðtalstímar á miðvikudögum. Sjá nánar hér.
- Sálfræðingur – viðtalstímar á þriðjudögum. Sjá nánar hér.
- Viðtalshópur. Boðið er upp á viðtöl við einstaklinga sem hafa áralanga reynslu og víðtæka þekkingu á MS-sjúkdómnum eða þekkingu á að ræða viðkvæm málefni. Slík viðtöl gagnast sérstaklega vel nýgreindum einstaklingum og aðstandendum þeirra en við greiningu vakna oft margar spurningar sem gott er að fá svör við milliliðalaust. Einnig geta einstaklingar sem eru að ganga í gegnum breytingar á t.d. sjúkdómsferli sínum haft gagn af. Hægt er að velja á milli einstaklinga, sjá nánar hér.
- Formaður félagsins, Björg Ásta Þórðardóttir, bjorgasta@msfelag.is, s. 615 1721.
- Útgáfa tímarits, MS-blaðsins (áður MeginStoð), tvisvar á ári.
- Fræðsluhópur sem heldur fyrirlestra á fræðslufundum MS-hópa á landsbyggðinni eða þar sem óskað er eftir fræðsluerindum, fylgist með því sem helst er að gerast í meðferðum og lyfjamálum í MS-heiminum og er í forsvari gagnvart heilbigðisyfirvöldum til að tryggja að MS-fólk njóti bestu mögulegrar meðferðar á hverjum tíma.
- Jafningjastuðningur. Jafningi er sá sem ljáir eyra og veitir stuðning og ráð þeim sem eru í sömu eða svipaðri stöðu og jafningi hefur sjálfur verið í. Sjá nánar hér.
- Fræðslu- og kynningafundir. Hljóðupptökur og glærur af fræðslufundum eru settar á heimasíðuna, að gefnu leyfi fyrirlesara, sem þjónusta við þá sem ekki eiga heimangengt og fyrir landsbyggðafólk. Sjá hér.
- Landsbyggðafundir með fjölbreyttum fræðsluerindum til að færa fólk á landsbyggðinni nær félaginu. Sjá glærur hér.
- Spjallhópar – Á heimasíðu félagsins er að finna upplýsingar um spjallhópa og tengiliði félagsins víðsvegar um landið. Hægt er að sækja um styrk til félagsins til að koma á fót og/eða efla spjallhópa utan höfuðborgarsvæðisins. Sjá nánar hér.
- Minningarkort, jóla- og tækifæriskort og önnur söluvara. Til sölu á skrifstofu en einnig er hægt að hringja í síma 568 8620 eða panta með tölvupósti á msfelag@msfelag.is. Sjá minningakort hér og söluvöru hér.
- Gjafakort félagsins til að styrkja tækjakaupasjóð félagsins, námssjóð unga fólksins eða fræðslusjóð, sjá nánar hér.
- Þátttaka í Alþjóðadegi MS-félaga – World MS Day
- Vefsíða og fésbókarsíða
- Erlent samstarf
- Nefndastarf
- MS Setrið er dagvist og endurhæfingarmiðstöð sem rekin er í MS-húsinu að Sléttuvegi 5. Í Setrinu er ekki aðeins fólk með MS-sjúkdóminn, þó það hafi forgang, heldur er þar einnig fólk með aðra taugasjúkdóma svo sem MND og Parkinson en einnig fólk í endurhæfingu eftir heilablóðfall eða aðra sjúkdóma og slys. Nánari upplýsingar hér á vefsíðunni eða í síma 568 8630.