Persónuverndarstefna

MS Setrið meðhöndlar persónuupplýsingar sem Setrið aflar sem ábyrgðaraðili.  Persónuupplýsingar skjólstæðinga Setursins og eftir atvikum aðstandenda þeirra er aðeins aflað að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem Setrinu er ætlað að veita. MS setrið mun ávallt geyma umrædd gögn með öruggum hætti og tryggja að tölvukerfi sér uppfært og í samræmi við öryggisstaðla.

Myndbirtingar af skjólstæðingum, hvort heldur á starfsstöð Setursins eða á heimasíðu, eru háðar samþykki þeirra.

MS Setrið mun vernda viðkvæmar heilsufarslegar persónuupplýsingar, hvort sem er með aðgangsstýringu eða læstum hirslum, í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

MS Setrið mun aðeins nota persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi.  Þegar deilt er persónuupplýsingum skjólstæðinga með þriðja aðila í lögmætum tilgangi t.d. vegna hvíldarinnlaga mun vinnsla slíkra upplýsinga takmarkast við þá þjónustu sem inna skal af hendi. MS Setrið mun upplýsa skjólstæðinga þegar upplýsingum þeirra er deilt með þriðja aðila og gæta þess að þriðji aðili uppfylli skilyrði persónuverndarlaga.

Ef óskað er eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu MS Setursins skal hafa samband við okkur á skrifstofu Setursins , Sléttuvegi5, 103 Reykjavík.